
Ætla mætti að ritstíflur fyrirfinnist ekki á Íslandi þegar litið er yfir framboð ritaðs efnis. Ekki er bara að Bókatíðindi verða brátt á stærð við símaskrána heldur kemur enn meira magn lesefnis út í öðru formi en á bók. Dagblöð og dægurtímarit gefa þúsundir síðna út í hverri viku — óháð því hversu margt marktækt gerist í samfélaginu. Tjáningarþorstanum er þó ekki þar með fullnægt því nokkuð kemur út af fræðitímaritum um flest milli himins og jarðar. Að ógleymdu öllu því fjölskrúðuga efni sem nálgast má á netinu. Hversu mikið af þessari flóru er lesið má deila um en hér verður litið á „framleiðslu“ hliðina og þá sérstaklega einkenni nokkurra birtingarmiðla.
Lesa áfram »