Cora Diamond er prófessor (emeritus) í heimspeki við háskólann í Virginíu. Hún er sérfræðingur í Wittgenstein, og hefur skrifað tugi greina um og í anda heimspeki hans, bæði hina fyrri og hina síðari. Þekktust er hún þó fyrir að vera upphafsmaður nýrrar stefnu í Wittgenstein-túlkun sem hlotið hefur nafnið Hinn nýi Wittgenstein (e. The New Wittgenstein), en einn helsti hvatinn að þessari nýju stefnu hefur verið ný og róttæk kenning Diamond um það hvernig beri að túlka hið fyrra verk Wittgensteins, Tractatus Logico-Philosophicus.
Lesa áfram »