Greinar frá deginum 14th February, 2008

fimmtudagur, 14. feb 2008

Stiklað á stóru í tilefni af 60 ára afmæli Ragnheiðar Þorláksdóttur í Sögufélagi

Ragnheiður Þorláksdóttir í Sögufélagi

Hún er hávaxin og gengur hnarreist en það er ljúfur dans í göngulagi hennar og lífsgleði. Hún býr í litlum steinbæ með stórum garði í Grjótaþorpi. Öspin í garðinum vakir yfir húsi hennar. Mótmæli hennar gáfu öspinni framhaldslíf á síðustu stundu þegar vélsögin sleikti trjábolinn ískyggilega fyrir rúmum 20 árum í áður fallegum skrúðgarði. Tvísýnt var um lífslíkur asparinnar á nýjum stað en þá kom enn til eðlislund hennar, elja og alúð. Með ungabarn upp á arminn barg Ragnheiður alaskaöspinni. Hún er baráttukona sem lætur ofríki og hugsunarleysi annarra ekki buga sig.

Lesa áfram »

Þessi síða

Leita á þessari síðu


ISSN