
Fyrir utan mig voru einungis tveir aðrir skráðir í meistaranámið við þjóðfræðideildina í UCC. Fámennið kom sér svolítið illa því ég kynntist eiginlega engum innfæddum vel. Meistaranám í UCC er ársprógram. Kúrsarnir eru árslangir og það kemur sér illa fyrir þá sem ætla einungis að vera þar eina önn í skiptinámi. Það hefði í raun verið ómögulegt að koma eftir áramót. Það var einnig óþægilegt að vera búinn með tvær annir af meistaranámi og taka námskeið sem eru enduróm af því sem maður hefur áður lært. Hins vegar var allt litað af sjónarhóli Íra sem bætti að mörgu leyti upp fyrir það að kannast við efnið.
Lesa áfram »