Mannfræðingar hafa á undanförnum áratugum rannsakað margvíslegar birtingarmyndir aktivisma og réttindabaráttu og áhrifa hennar innan hinna ýmsu samfélaga. Sem dæmi um mannfræðirannsóknir á aktivisma mætti nefna rannsóknir á uppbyggingu og áhrifamætti hinna ýmsu félagasamtaka og hagsmunasamtaka. Dæmi um réttindarannsóknir eru rannsóknir á kvenréttindabaráttu víðsvegar um heim, réttindabaráttu margvíslegra etnískra hópa og réttindabaráttu frumbyggja innan viðkomandi ríkja. Óhætt er því að álykta að mannfræðin sem fræðigrein búi yfir umtalsverðri þekkingu á hinum ýmsu birtingamyndum aktivisma.
Lesa áfram »