
Það er varla hægt að opna dagblað eða fara á fjölsóttar vefsíður án þess að einhvers staðar í þeim miðlum glitti í auglýsingar um helgarferð til Lundúna, bara að hoppa þangað, fá sér svolítið gott að borða og versla í heimsborginni sem er handan við hornið. Sjálf var ég aðeins eins árs gömul þegar ég kom þangað fyrst, þótt ég væri ekki svo mikið að lifa heimsborgaralífinu einmitt þá, hef ég komið þangað þó nokkuð oft síðar og einmitt stundað flest það sem slíkar auglýsingar tæla mann með. Þess vegna taldi ég mig nokkuð kunnuga þegar ég ákvað að taka þar eina önn í skiptinámi við háskóla að nafni University College London eða UCL eins og hann er oftast kallaður. En ég komst fljótt að því að jafnvel þeir sem hafa búið alla sína tíð í London geta varla sagt sig kunnuga borginni.
Lesa áfram »