
Á síðustu misserum hafa miklar umræður skapast um lögmæti svokallaðra jafningjaneta (e. Peer to peer). Komst sú umræða í hámæli er sýslumaðurinn í Hafnarfirði féllst á kröfu nokkurra rétthafasamtaka um lögbann á heimasíðuna torrent.is þann 19. nóvember síðastliðin. Var því haldið fram að þar færi fram ólögmæt dreifing á höfundaréttarrvörðu efni. Samhliða lögbanninu var höfðað staðfestingarmál á hendur Istorrent ehf. og Svavari Lútherssyni, sem var einn helsti stjórnandi síðunnar frá upphafi. Þeir aðilar sem að lögbanninu standa krefjast ekki einungis staðfestingar á lögbanninu, heldur gera þeir einnig kröfu um skaðabætur og að Svavari verði ekki heimilt að reka sambærilegar vefsíður og torrent.is. Er þessi pistill er skrifaður stendur aðalmeðferð málsins ennþá yfir, en einungis hefur verið rætt um formhlið málsins, þar sem Istorrent ehf. og Svavar hafa krafist frávísunar málsins. Fróðlegt verður að sjá hvernig þessu máli mun ljúka og hvort horft verði til sambærilegra dómsmála sem fallið hafa í nágrannalöndum okkar. Undirritaður ætlar hér að varpa ljósi á þau álitaefni sem við koma höfundarétti og BitTorrent tækninni.
Lesa áfram »