Greinar frá deginum 13th March, 2008

fimmtudagur, 13. mar 2008

Saturday Night Fever - Kynhlutverk diskódraumsins

Myndin Saturday Night Fever kom út í desember árið 1977 og var John Travolta þar í aðalhlutverki sem ungi maðurinn Tony Manero. John Travolta var ein skærasta stjarna Hollywood á þessum árum. Naut hann sérlega mikillar hylli hjá unglingum og var hann eitt helsta átrúnaðargoð þeirra. Handrit myndarinnar var unnið út frá blaðagrein er birtist í New Yorker Magazine í júlí árið 1976, en greinin fjallar um lífstíl æsku þess tíma. Samkvæmt greininni strituðu flest ungmenni alla virka daga en slepptu sér lausum á laugardagskvöldum og dönsuðu á diskótekum.1 Myndin sló í gegn þegar hún kom út.2 Mánuði áður en Saturday Night Fever var frumsýnd kom tónlistin úr myndinni út á breiðskífu, en um tónlistina sáu m.a. hljómsveitin Bee Gees, sem var gífurlega vinsæl diskóhljómsveit. Saturday Night Fever The Original Soundtrack hljómplatan er mest selda kvikmyndatónlistarplata í heimi og inniheldur m.a. lög sem flestir kannast við í dag, eins og „Stayin' Alive“, „Night Fever“, „How Deep Is Your Love“ og „You Should Be Dancing“ en öll þessi lög eru með Bee Gees. Með útkomu myndarinnar og plötunnar varð gífurleg aukning á vinsældum diskó tónlistar, en fyrir útkomu Saturday Night Fever naut diskóið aðeins vinsælda hjá þröngum hópi ungs fólks.3

Lesa áfram »

Þessi síða

Leita á þessari síðu


ISSN