
Í greininni hér á undan var greint frá hugmyndum William James um hvernig menn þurfi að kasta frá sér hinni gömlu trú ef þeir eigi að geta sæst við nýja og breytta heimsmynd. Menn eiga ekki að þurfa að hafna trúarbrögðum alfarið heldur þurfi þeir að laga guðshugmyndina að nýrri heimsýn vísindanna. En hann vill einnig meina að lífið geti haft tilgang og að það sé í okkar valdi að skapa þann tilgang. Og hann lætur ekki þar við sitja, hér verður fjallað um hvernig James færir rök fyrir því að frumhlutverk manna sé að uppfylla þann tilgang sem heimurinn geti haft og þar með veita lífum okkar tilgang og hvernig það hlutverk hefur siðferðilegt vægi.
Lesa áfram »