Greinar frá deginum 27th March, 2008

fimmtudagur, 27. mar 2008

Hvað er að gerast? Um nám í hnattvæðingu og aðlögun innflytjenda

Teikningar barna á biðstofu UNHCR í Damaskus 16. október 2007.

Eftir nokkurra ára námshlé var mig farið að þyrsta í að bæta við mig ofan á BA-prófið mitt og fannst líka að það gæti verið góð hugmynd að prófa að búa annarsstaðar en á Íslandi. Okkur heimilisfólkinu kom saman um að það væri fínt að taka hænuskref og stefna að því að finna nám á einhverju Norðurlandanna. Fyrir valinu varð mastersnám í hnattvæðingu og aðlögun innflytjenda (Master i globalisering og integration) sem kennt er við Háskóla Suður-Danmerkur (Syddansk Universitet) í Odense. Námið er eitt ársverk kennt á tveimur árum (fjórum önnum) þar sem nemendur og kennarar hittast eina stífa fyrirlestrahelgi í mánuði, s.s. svipað og fjarkennsla á Íslandi.

Lesa áfram »

Þessi síða

Leita á þessari síðu


ISSN