Greinar frá deginum 1st April, 2008

þriðjudagur, 1. apr 2008

Áróðurslíkanið - Hvers neysluvara ert þú?

Árið 1988 gáfu Noam Chomsky og Edward S. Herman út rit sitt Manufacturing Consent: The Political Economy of the Mass Media. Þar settu þeir fyrst fram kenningu sína um áróðurslíkanið (e. the Propaganda model). Samkvæmt kenningum Chomsky og Herman er hlutverk fjölmiðla það að innræta almenningi þau gildi og þá tegund hegðunar sem valdhafar telja æskilega. Í flóknum samfélögum nútímans, þar sem ólíkir hagsmunir takast á, krefst innrætingin markviss og skipulagðs áróðurs. sem. Í einræðisríkjum þar sem fjölmiðlun er í höndum ríkisins er framkvæmd áróðursins bæði einföld og augljós en í samfélögum þar sem fjölmiðlun er sögð frjáls, eða, í höndum einkaaðila, er hún öllu flóknari. Í raun eru frjálsri fjölmiðlun þó þröngar skorður settar hvað varðar efnisval og umfjöllun. Bæði koma þar til ójafnar fjárhagslegar aðstæður fjölmiðla og svo hitt að þó ritskoðun sé ekki formleg er hún engu að síður til staðar.

Lesa áfram »

Þessi síða

Leita á þessari síðu


ISSN