Douglas Kellner er bandarískur menningarfræðingur sem unnið hefur að rannsóknum á sviði fjölmiðla. Sér í lagi hefur hann beint sjónum sínum að því hvernig fjölmiðlun hefur í síauknum mæli snúist um það að gera atburði að viðburðum. Það er skoðun Kellners að menningarfræðin sé sérstaklega vel til þess fallin að greina lykilatriði í pólítískri og samfélagslegri umræðu og að fræðimenn eigi ekki að forðast það að takast á við slík efni. Ennfremur sé það skylda sérhvers borgara að læra að þekkja þá tækni sem bæði fjölmiðlar og yfirvöld beita til þess að knýja almannaálitið að tilteknum málstöðum.Í bók sinni Media culture: Cultural studies, identity and politics between the modern and the postmodern fjallar hann auk annars um umfjöllun stórra vestrænna fjölmiðla um Persaflóastríðið árið 1991. Lítur hann svo á að Persaflóastríðið hafi verið menningarpólítískur viðburður að jafn miklu leyti og það var hernaðarlegur atburður.Sú nálgunarleið sem Kellner styðst við byggist á því að skoða textann (í þessu tilfelli Persaflóastríðið) frá mörgum sjónarhornum samtímis. Hann beitir í þeim tilgangi tólum þeirrar menningarfræði sem kennd er við „Political Economy“, textafræðilegri greiningu og viðtökufræði fjölmiðlamenningar.
Lesa áfram »