Greinar frá deginum 8th April, 2008

þriðjudagur, 8. apr 2008

Af dilkadrætti

Í sumar sem leið var ég á rölti um miðbæ Reykjavíkur og álpaðist, eins og maður gerir iðulega, inn í einhverja af bókabúðum bæjarins og, eins og iðulega, fór ég ekki tómhent þaðan út aftur. Einhversstaðar í hilluflæminu varð lítil forvitnileg bók a vegi mínum sem strax vakti athygli mína og hefur síðan verið mér bæði góð afþreying og tilefni til vangaveltna. Þessi litla forvitnilega bók heitir Home-Made: Contemporary Russian Folk Artifacts og er eftir rússneska listamanninn Vladimir Arkhipov. Arkhipov er sjálfmenntaður listamaður sem hefur síðan 1990 einbeitt sér að rússneskri nútímamenningu og þá sérstaklega heimatilbúnum, hversdagslegum nytjahlutum. Í stuttu máli hefur Arkhipov ferðast um Rússland vítt og breitt, inn á heimili rússneskrar alþýðu, vopnaður myndavél og diktafón, í leit að efnivið í listsköpun sína. Í bráðum tvo áratugi hefur hann nú sankað að sér einhverju forvitnilegasta safni gripa sem um getur og auk þess sköpunarsögu hvers og eins þeirra. Í safni hans eru nú yfir 1000 munir af öllum stærðum og gerðum – allt frá heimasmíðuðum baðtappa til traktors.

Lesa áfram »

Þessi síða

Leita á þessari síðu


ISSN