Haustið 2007 hóf ég MPhil nám í neðansjávar fornleifafræði (e. Maritime Archaeology) við Norsk teknisk naturvitenskapelig universitet (NTNU) í Þrándheimi. Eftir að hafa klárað BA nám í fornleifafræði við HÍ haustið 2007, var ég staðráðin í því að halda til einhvers hinna Norðurlandanna í meistaranám. Neðansjávar fornleifafræði varð fyrir valinu þar sem ég hef mikinn áhuga á köfun, auk fornleifafræði, og fannst því frábært að geta sameinað þetta tvennt. Neðansjávar fornleifafræðingar hafa stundum verið sagðir hafa svokallaðan Indiana Jones complex, þar sem “venjulegum“ fornleifafræðingum finnst þeir þurfa að gera hlutina mun erfiðari en nauðsyn krefur. Fornleifafræðingurinn Paul Bahn, skrifaði eitt sinn að það að grafa neðansjávar væri eins og að reyna að standa upp í hengirúmi. Vissulega er fornleifafræði neðansjávar flóknari en uppi á yfirborðinu, þar sem mun erfiðara er að halda sama staðli í rannsóknum neðansjávar en á þurru landi. Með betri tækni hefur þetta þó orðið auðveldara og þá sérstaklega í sambandi við djúpsjávar fornleifafræði, þar sem notast er við sérstaka staðsetningatækni tengda GPS.
Lesa áfram »