
Síðastliðið haust tók til starfa í Borgarnesi nýr framhaldsskóli, Menntaskóli Borgarfjarðar. Skólinn er fyrir margra hluta sakir sérstakur og er þar einna helst að nefna að öllum nemendum í fullu námi eru lánaðar fartölvur þann tíma sem þeir stunda nám við skólann og geta svo keypt tölvurnar að námi loknu. Verkefnið er unnið í samstarfi við Apple umboðið á Íslandi og Sparisjóð Mýrarsýslu. Aðrir þættir þar sem Menntaskóli Borgarfjarðar hefur sérstöðu eru t.d. eignarhald, en skólinn er einkaskóli, námsmat, en enginn prófatími er í desember og maí og fjöldi starfsdaga er alls 9 dögum fleiri á ári en í hefðbundnum framhaldsskólum. Þá verður hægt að útskrifast til stúdentsprófs úr skólanum á þremur árum á eðlilegum námshraða.
Lesa áfram »