
Að jórtra er hugtak sem á ekki einungis við um meltingu jórturdýra heldur getur líka átt við ákveðið hugarástand. Dýrin jórtra á fæðunni, velta henni aftur upp í munninn til að tyggja betur og melta fæðuna þannig. Sama tuggan kemur upp aftur og aftur þar til búið er að mala hana nægilega. Þetta hugtak lýsir ágætlega því hugarástandi þegar fólk veltir vandamálum sínum fyrir sér í sífellu. Vandamálum er velt upp og þau könnuð í þaula í þeim meinta tilgangi að finna lausn á þeim. Jórtrun hjálpar jórturdýrum við að melta fæðuna en hjálpar að sama skapi ekki fólki til að fá úrlausn sinna mála. Það má líka segja að þegar fólk jórtrar er það eins og hamstur í hlaupagrind, fer alltaf í hringi og kemst ekkert áfram.
Lesa áfram »