Nú er verkalýðsdagurinn 1. maí nýliðinn og vinnandi fólk hélt daginn hátíðlegan með kröfugöngum og útifundum um land allt. Í göngunni í Reykjavík mátti víða sjá bleika fána og var það hópur á vegum Femínistafélags Íslands sem þar vakti athygli á kjarabaráttu kvenna. Femínistafélagið hefur frá upphafi látið til sín taka á baráttudegi verkalýðsins en hvernig skyldi standa á því?
Lesa áfram »