Greinar frá deginum 8th May, 2008

fimmtudagur, 8. maí 2008

Hugmyndin um mig, þig og alla hina

Spegill, spegill …

Í hinu svokallaða fjölmenningarsamfélagi er „mismunurinn“ kóngur í ríki sínu. Þó mætti segja að þetta fyrirbæri hafi fyrst á 7. áratug 20. aldar fengið ákveðna stöðuhækkun og öðlast gildi, m.a. sem grundvöllur að þeirri sjálfsmyndarpólitík sem hefur tröllriðið Vesturlöndum á síðustu áratugum. Minnihlutahópar gera kröfu til jafnréttis á við aðra samfélagsþegna og vilja fá að vera öðruvísi, þ.e. lausir undan kröfum meirihlutasamfélagsins um að samlagast því svo það geti látið sem menningarmunur sé ekki til. Menningarfræðin (cultural studies) hefur gengið til liðs við þennan málstað og þaðan sækja pólitískar hreyfingar gjarnan rökstuðning sinn. Þar er sjálfsmynd (identity) eðlilega lykilhugtak og rannsóknir á því fyrirbæri hafa margfaldast á síðustu áratugum. Sjálfsmyndarrannsóknir eru því ekki einfaldlega tískufyrirbrigði heldur gegna þær mikilvægu hlutverki sem vopn í sjálfsmyndarpólitík.

Lesa áfram »

Þessi síða

Leita á þessari síðu


ISSN