Sjónmenningarleg fræði eru uppfull af mótsagnarkenndum greiningaraðferðum og mótast m.a. af fræðilegri orðræðu. Fræðin hafna algjörlega því viðhorfi að myndefni sé ekki jafnmikilvægt orðinu í vestrænu samfélagi. Lestur á myndum getur verið ólíkur innan menningarsamfélaga og jafnvel á milli einstaklinga. Hinsvegar er myndmál kannski oft alþjóðlegra heldur en hið ritaða orð. Því er mikilvægt að horfa á menningarlegt samhengi við lestur auglýsinga og er það nokkuð ljóst að auglýsingar Thule, eru miðaðar við íslenskt samfélag, íslenskan húmor. Kaldhæðinn húmorinn gæti komið útlendingum spánskt fyrir sjónir og jafnvel verið móðgandi.
Lesa áfram »