Hvert mannsbarn hér á landi kannast við eldgosið í Heimaey í Vestmannaeyjum 1973. Það er ekkert skrýtið enda telst gosið til stærstu náttúruhamfara Íslandssögunnar. Gosið hófst aðfaranótt hins 23. janúar 1973 og stóð yfir í rúmlega fimm mánuði eða til 3. júlí sama ár. Sumarið 2005, þegar rúm 30 ár voru liðin frá gosinu, hófst dálítið ótrúlegt en áhugavert verkefni í Eyjum – nefnilega uppgröftur þess bæjarhluta sem varð undir hrauni og vikri 1973. Verkefnið hefur hið skemmtilega vinnuheiti „Pompei Norðursins“, með augljósri og eðlilegri skírskotun í Pompeii, hina sögufrægu ítölsku borg sem grófst undir ösku í gosi í Vesúvíusi árið 79 e. Kr.
Lesa áfram »