Greinar frá deginum 27th May, 2008

þriðjudagur, 27. maí 2008

Einkamálsrök Wittgensteins

Eitt af höfuðverkum heimspeki 20. aldarinnar er Philosophical Investigations eftir austurríska heimspekinginn Ludwig Wittgenstein.1 Þó heimspekingar séu flestir sammála um mikilvægi þess er lítið samkomulag um eðli þeirra röksemdafærslna sem verkið inniheldur, og má nærri heita að túlkanir á þeim séu jafnmargar og túlkendurnir. Frægasta dæmið um slíka röksemdafærslu eru ef til vill hin svokölluðu einkamálsrök, sem hafa verið skýrð á ýmsa vegu. Þó samkomulag ríki um að með einkamálsrökunum sýni Wittgenstein fram á það að tungumál hljóti að vera opinbert í einhverjum skilningi er lítið samkomulag um það hvernig hann fari að því að komast að þessari niðurstöðu eða hvað hún þýði. Hér verður fjallað stuttlega um þær deilur sem staðið hafa um túlkun einkamálsrakanna og spurt hver geti verið skýringin á því hversu illa heimspekingum hefur gengið að koma sér saman um túlkun á heimspeki Wittgensteins.

Lesa áfram »

Þessi síða

Leita á þessari síðu


ISSN