17. júní 2008 verður líka minnst fyrir annað. Hann var nefnilega haldinn í töluvert öðru pólitísku andrúmslofti en oftast hefur áður ríkt á landinu. Aldrei fyrr hefur til dæmis umræðan um hugsanlega umsókn og jafnvel aðild Íslands að Evrópusambandinu verið jafn fjörug og aldrei virðist stuðningurinn við aðild að sambandinu og um leið upptöku Evru sem gjaldmiðils hafa verið meiri. Hvort hér sé um tímabundna fylgissveiflu í ljósi efnahagslegra sviptivinda mun tíminn leiða í ljós. Á hinn bóginn er umræðan svo frjó að það virðist kjörið að brydda upp á ýmsum vangaveltum um þessi mál. Hér verður tækifærið nýtt og fjallað um málefni sem hefur brunnið á mörgum, jafnt fylgjendum sem andstæðingum aðildar, nefnilega fullveldið. Í greininni verður rætt um hvaða áhrif hugmyndir eins og fullveldi hafi á hugmyndir um alþjóðleg kerfi eða ríkjasamfélög eins og ESB, en áður en lengra er haldið er ekki úr vegi að hafa á hreinu hvað felst í þessum tveimur hugtökum og í hvaða samhengi á að setja þau.
Lesa áfram »