Óeigingjörn hjálpsemi, það að veita öðrum aðstoð án þess að það gagnist á beinan hátt þeim sem hjálpar, er hegðun sem hefur lengi verið félagssálfræðingum hugleikin. Fólk tekur höndum saman til hjálpar bágstöddum, opnar styrktarreikninga, mætir á tónleika og stendur upp fyrir ellilífeyrisþegum í strætó. Öll höfum við ýmist hjálpað, og/eða þegið hjálp með þökkum frá ókunnugum á lífsleiðinni.Það kemur samt fyrir okkur öll að við hegðum okkur eins og dýrin í dæmisögunni um litlu gulu hænuna og segjum „ekki ég", eða hreinlega lítum undan og látum eins og neyðin sé ekki til staðar. Hugsanlega er það öllu áhugaverðari hegðun sem þarfnast frekari skýringa.
Lesa áfram »