Síðastliðinn fimmtudag steig írski þjóðfræðingurinn dr. Cliona O’Carrol í pontu í Odda og skýrði frá afar áhugaverðu verkefni sem félagasamtökin Northside Folklore Project hafa á síðustu árum unnið að í borginni Cork á Írlandi. Cork er ein af stærri borgum Írlands með um tvisvar sinnum fleiri íbúa en Reykjavík. Söfnunarverkefni samtakanna snýr að söfnun þjóðfræðilegra heimilda um borgina og það samfélag sem þar þrífst. Snýst það annars vegar að söfnun ljósmynda og hinsvegar munnlegra heimilda, bæði á hljóð- og myndformi. Rekja má upphaf verkefnisins til útvarpsþátta sem gerðir voru þegar Cork var menningarborg Evrópu árið 2005, en í þáttunum var borgin rannsökuð út frá sjónarhorni borgarbúa.
Lesa áfram »