Eins og frægt er varaði þýski heimspekingurinn Martin Heidegger (1889-1976) við hættum tækninnar. En hvað var það nákvæmlega sem var honum svo hugleikið? Í greininni „Die Frage nach der Technik."1 (Spurningin um tæknina) reynir hann að komast að eðli hennar. Hann telur að allt hafi sér visst eðli en það er þó dulið mönnunum, þ.e. vera hlutanna er ekki aðeins það sem er fyrir framan okkur eða það sem hann kallaði nærveru heldur erum við alltaf í tvíþættum tengslum við hana (nærvera/fjarvera). Í ljósi þeirra gríðarlegu áhrifa sem tæknin hefur á líf okkar er mikilvægt að komast að þessu dulda eðli.
Lesa áfram »