Hver er hættan við tækni sem Heidegger varaði við? Tæknin sem Heidegger kallar eina birtingarmynd afhjúpunar verunnar hefur leitt til mikilla framfara á öllum sviðum mannlegs lífs. Má þá ekki draga þá ályktun að gott sé fyrir mennina að sjá hlutina í kringum sig sem birgðastöður? Heidegger telur að svo sé ekki. Hættan liggur i því að vegna þess að Ge-stell, áskorunin sem lætur mennina skynja allt sem birgðastöður ágerist ávallt, verður alltaf meiri og meiri þá leiðir hún á endanum til þess að við förum að skynja mennina sjálfa sem tiltæka.
Lesa áfram »