Mikill viðbúnaður var í kringum gönguna, ekki aðeins af hálfu lögreglu heldur einnig aðstandenda og þátttakenda. Að morgni 31. maí lögðum við af stað í litlum hópum niður í miðbæ. Var brýnt fyrir okkur að láta hvergi sjást í Amnesty-merki eða boli og að fela vandlega öll spjöld og borða sem við ætluðum að bera í göngunni til að minnka líkur á að ráðist yrði á okkur. Þegar komið var á staðinn sást að lögreglan hafði í raun lokað stórum hluta miðbæjarins. Hátíðarsvæðið hafði aðeins einn inngang og þar var fjöldi lögreglumanna sem leitaði í fórum hvers þess sem vildi komast inn. Til að torvelda aðgang enn frekar þurfti hinn almenni borgari að gera ráðstafanir fyrirfram, að verða sér úti um appelsínugult armband í aðdraganda göngunnar eða þekkja einhvern innan garðs sem gat ábyrgst að viðkomandi væri vinveittur STT-samfélaginu. Því varð snemma ljóst að enginn þurfti að óttast ónóga lögregluvernd í það skiptið.
Lesa áfram »