Í fyrsta hluta greinarinnar verður sérstaklega staldrað við eina byggingu, mosku Babúrs keisara (Babri Masjid á arabísku) í bænum Ayodhya á Norður-Indlandi. Hér verður fjallað um forsögu, tilurð og arkitektúr byggingarinnar, ásamt því sem saga hennar verður rakin fram á 19. öldina. Í síðari hlutum verður nánar kafað í hinar löngu deilur um eignarhald á byggingarlóðinni, ásamt því sem örlögum moskunnar verða gerð skil, en hún var að lokum eyðilögð þann 6. desember 1992.
Í greininni verður því haldið fram að trúarlegur arkitektúr hafi orðið að táknmynd fyrir deilur hindúa og múslíma í nútímanum, eins og glögglega sést á eyðileggingu moskunnar. Hér verður þó ekki aðeins staldrað við nútímann. Skrefið verður tekið til fulls og því haldið fram að þetta hlutverk arkitektúrsins megi rekja aftur um að minnsta kosti þúsund ár, eða allt til upphafs þess tíma er múslimar urðu ríkjandi afl á Indlandi.
Lesa áfram »