Í fyrsta hluta þessarar greinar voru kynntar til sögunnar aldalangar deilur hindúa og múslima á Indlandi. Rætt var um upphaf veldis Babúrs keisara, byggingu mosku hans í Ayodhya og byggingarlist mógúlanna. Þá var upphafi deilnanna um moskuna gerð skil og þær raktar fram á 19. öldina. Í öðrum hluta var fylgst með baráttunni um moskuna fram undir lok 20. aldarinnar, en því næst reynt að grafast fyrir um ástæður þess haturs sem ríkir milli hindúa og múslima í nútímanum. Í því samhengi var löng saga innbyrðis helgispjalla á milli trúarhópanna skoðuð. Þá var einnig litið á þátt breska heimsveldisins sem geranda og sagnaritara og sjónum sérstaklega beint að hlutverki Sjíva-hofsins í Somanatha í Gujarat-héraði í því ferli. Í þessum þriðja og síðasta hluta verður litið á sjálfstæðisbaráttu þjóðernissinnaðra hindúa á fyrri hluta 20. aldar.
Lesa áfram »