Andrýmin í borgarlandslagi Reykjavíkur eru nokkuð mörg, allt frá því að vera litlir blettir sem urðu afgangs við byggingu hverfanna (s.s. ónýtt byggingarland), til þess að vera vel skipulögð leiksvæði fyrir börn eða skrúðgarðar. Þessi svæði eru skilgreind í Aðalskipulagi Reykjavíkur 1984-2004 og eru þar merkt inn á sérstakt kort sem græn svæði og opin svæði. Í núgildandi Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024 eru þessi svæði ekki sýnd eða skilgreind sérstaklega og er það miður. Þar er landi borgarinnar skipt niður í stóra og víðtæka flokka s.s. íbúðarsvæði og opin svæði. Opnu svæðin eru augljós í borgarlandslaginu þar sem þau eru mjög víðáttumikil, hér er t.d. átt við Laugardalinn, Elliðaárdalinn og Öskjuhlíðina. Minni svæðin s.s. leikvellir og litlir almenningsgarðar eru ekki skilgreind, hér er átt við t.d. Hallargarðinn við Fríkirkjuveg og Grundargarð við Grundargerði.
Lesa áfram »