
17.-30. nóvember sl. var Ísland á allra vörum í Caen og nágrenni. Margir helstu rithöfunda íslensku þjóðarinnar lögðu leið sína til borgarinnar og tóku þátt í pallborðsumræðum og viðtölum auk þess sem þeir hittu grunn- og framhaldsskólanemendur út um borg og bæi í syðri hluta héraðsins. Meðal þeirra voru Sjón, Steinunn Sigurðardóttir, Guðrún Eva Mínervudóttir, Kristín Marja Baldursdóttir, Árni Þórarinsson, Arnaldur Indriðason, Sigurður Pálsson og Jón Hallur Stefánsson. Efnt var til kvikmyndaveislu þar sem Frökkum var boðið að grandskoða og ræða kvikmyndir Friðriks Þórs Friðrikssonar, Sólveigar Anspach, Dags Kára, Baltasars Kormáks og Stúdíó Caoz. Tónlist lék einnig stórt hlutverk og ber þar helst að nefna tónleika Hamrahlíðarkórsins, Mr. Silla & Mongoose, Ghostdigital og Biogen auk kvikmyndatónleika Barða Jóhannssonar við sænsku kvikmyndina Häxan. Íslenski dansflokkurinn var einnig í öndvegi og hélt Frakklandsfrumsýningar á fimm dansverkum. Norrænudeild háskólans í Caen skipulagði málþingið L’Islande dans l’imaginaire um ímyndað Ísland með þátttöku 12 fræðimanna frá Frakklandi, Bretlandi, Bandaríkjunum og auðvitað Íslandi. Þá eru ótaldir margs konar listviðburðir, pallborðsumræður og sýningar. Það þarf því enginn að velkjast í vafa um að hátíðin er gríðarstór og gegnir þar af leiðandi mikilvægu hlutverki í að miðla og móta ákveðna ímynd af Íslandi. En hver skyldi sú ímynd vera þetta árið, svo stuttu eftir skipbrot íslenska efnahagskerfisins sem hefur svert orðspor Íslands í mörgum heimsins löndum?
Lesa áfram »