Greinar frá deginum 8th January, 2009

fimmtudagur, 8. jan 2009

Fornleifafræði fyrir börn – áhrifarík leið til efldrar söguvitundar?

Ungir fornleifafræðingar að störfum

Á undangengnum árum hefur orðið töluverð vakning í fornleifarannsóknum hér á landi. Þessi vakning hefur ekki einungis orðið til þess að efla fornleifafræði sem fræðigrein heldur einnig til þess að efla vitund og áhuga meðal almennings á greininni. Mikill fjöldi fólks heimsækir fornleifafræðinga við störf sín hvert sumar og fylgist með hvernig rannsóknum vindur fram. Við einhverja af stærri uppgröftunum hefur jafnvel verið stofnað til sérstaks stöðugildis tengt kynningu og móttöku almennings. Þessi aukni áhugi hefur einnig birtst í svokölluðum fornleifaskólum þar sem börnum og ungmennum hefur gefist kostur á að kynnast starfi fornleifafræðinga á beinan hátt, þótt oft sé sú viðkynning að hluta til „sviðsett". Þetta hefur m.a. verið gert á Þingvöllum og í Skálholti og hefur mælst vel fyrir. Möguleikarnir sem í fornleifunum og fornleifafræðinni felast í tengslum við fræðslu barna eru hins vegar mun meiri og fjölbreyttari en svo.

Lesa áfram »

Þessi síða

Leita á þessari síðu

Greinar af handahófi


ISSN