
Í doktorsverkefni sínu Om Begrebet Ironi med stadigt Hensyn til Socrates1 setur Søren Kierkegaard fram umdeilda lesningu sína á Sókratesi sem íronískri persónu. Hann komst að þessari niðurstöðu eftir ítarlega rannsókn á þremur meginheimildum um Sókrates: textum Xenophons, leikritinu Skýjunum eftir Aristófanes og samræðum Platons. Hann hélt því fram að Xenophon og Platon gæfu skakka mynd af Sókratesi, sá fyrri gerði honum ekki nógu hátt undir höfði en sá seinni lýsti honum á alltof mikilfenglegan hátt. En hann telur að með því að feta milliveginn sé hægt að komast að mynd af Sókratesi sem er næst raunveruleikanum. Einnig heldur hann því fram að Aristófanes gefi sem réttasta mynd af hinum sanna, sögulega Sókratesi.
Lesa áfram »