Greinar frá deginum 5th February, 2009

fimmtudagur, 5. feb 2009

Nokkur orð í belg um íslenska kumlhesta

Kuml 3 á Ytra-Garðshorni (Kristján Eldjárn 1966: 37)

Kumlhestar eru algengasta haugfé íslenskra kumla en kuml, það er grafir heiðinna forfeðra okkar, eru einn stærsti minjaflokkurinn frá landnámsöld og líklega sá minjaflokkur sem mest hefur verið rannsakaður og fjallað um. Á Íslandi eru í dag u.þ.b. 325 þekkt kuml sem dreifast á rúmlega 160 fundarstaði víðsvegar um landið. Í um 115 þessara kumla hafa fundist ummerki um hest/hesta, sem er hærra hlutfall en þekkist annarsstaðar í Víkingaheiminum. Þrátt fyrir þetta eru íslensku kumlhestarnir lítt rannsakað fyrirbæri. Hér á eftir verður farið nokkrum orðum um þetta megineinkenni íslensks greftrunarsiðar á Víkingaöld.

Lesa áfram »

Þessi síða

Leita á þessari síðu


ISSN