San Francisco á sér ekki langa sögu en merkilega engu að síður. Þróunin frá litla mexíkóska verslunarbænum Yerba Buena, sem byggðist upp í kringum trúboðamiðstöð og varnarvirki Spánverja á síðari hluta 18. aldar, að alþjóðlegu stórborginni San Francisco felur í sér breytilegt og markvissa skipulagssögu innan sístækkandi borgarmarka.
San Francisco er staðsett við samnefndan flóa í norðurhluta Kaliforníu á vesturströnd Bandaríkjanna; á odda San Francisco skagans. Fyrsti vísirinn að San Francisco-borg myndaðist þegar rúmlega tvö hundruð Spánverjar undir forystu herforingjans Juan Bautista de Anza námu skagann frá sjó árið 1776 og settu þar á fót trúboðamiðstöð. Kirkja trúboðamiðstöðvarinnar er elsta upprunalega bygging borgarinnar og kennileiti númer eitt. Landnemarnir spænsku settu einnig upp hervarðstöð og virki sér til verndar og eru þær menningarminjar, ásamt trúboðamiðstöðinni, elstu tengingar San Francisco við fortíð sína og uppruna.
Lesa áfram »