
Fornleifarannsókn undir stjórn Dr. Steinunnar Kristjánsdóttur hefur staðið yfir á munkaklaustrinu á Skriðuklaustri í Fljótsdal frá 2002. Á hverju ári hafa fundist hundruð gripa allt frá brenndum dýrabeinum til gullhringa. Nokkrar sérstakar rannsóknir hafa verið gerðar á ákveðnum gripaflokkum sem fundist hafa í uppgreftrinum svo sem gripum tengdum bókagerð, leirkerjum, nöglum og líkkistum til að reyna að varpa frekara ljósi á starfsemi og daglegt líf í klaustrinu. Í þessari grein verður tekinn fyrir einn einstakur gripur, brot úr lítilli leirkönnu sem fannst sumarið 2003, og fjallað um gerð hennar, uppruna og æviferil.
Lesa áfram »