Greinar frá deginum 24th March, 2009

þriðjudagur, 24. mar 2009

Frelsi og réttlæti: Réttlætislögmál Rawls og gagnrýni Nozicks 1.hluti

American_Cash

Bandaríkjamennirnir John Rawls og Robert Nozick voru án efa mestu stjórnspekingar 20. aldarinnar. Hvor um sig hefur haft mikil áhrif á hugmyndir manna um réttlátt stjórnarfar og mannréttindi, en Nozick lét meðal annars þau orð falla um verk Rawls að allir nútímastjórnspekingar þyrftu að taka þau til skoðunar, svo mikilvæg væru þau. Rawls og Nozick voru kyndilberar tveggja andstæðra stjórnkerfa: Nozick frjálshyggjunnar, en Rawls jafnaðarstefnu.1 Hér verður leitast við að útskýra eitt meginatriða í kenningu Rawls, hið svokallaða mismunarlögmál, og gagnrýni Nozicks á það. Við skoðun á mismunarlögmálinu þarf að varpa ljósi á aðferð Rawls og tilgang, útskýra þau hugtök sem hann leggur til grundvallar vinnu sinni og hvaða stöðu lögmálið gegnir í kenningakerfi hans. Gagnrýni Nozicks á mismunarlögmálið verður svo að setja í samhengi við hugmyndafræði hans í heild, sem skipar allt öðrum atriðum í öndvegi en kenning Rawls. Reynt verður að gera skýra grein fyrir málaflutningi fræðinganna beggja, en undir lokin verða kenningar þeirra vegnar hvor á móti annarri og athugað hvort kenning Rawls eigi til svör við gagnrýni Nozicks. Vonandi fæst svo svar í lokin – einhvers konar svar, að minnsta kosti – við því hvort mismunarlögmálið í kenningu Rawls sé óréttlátt.

Lesa áfram »

Þessi síða

Leita á þessari síðu


ISSN