Greinar frá deginum 31st March, 2009

þriðjudagur, 31. mar 2009

Sjálfsmynd íslensku þjóðarinnar á umbrotatímum - fyrri hluti

imynd

Ýmsar vangaveltur hafa verið í kringum þjóðarhugtakið og hvað það þýði að tilheyra ákveðinni þjóð. Sumir telja þjóðríki nauðsynlega tengd menningu og tungu ákveðins samfélags, aðrir telja þjóð vera sprottna af sameiginlegri ákvörðun hóps manna, óháð því hvað sameinar þann hóp, sem raunar endurskoðar þá ákvörðun á hverjum degi. Íslendingar hafa þurft að endurskoða allverulega sjálfsmynd sína sem þjóð eftir hinn mikla efnahagsskell sem við fengum á okkur á haustmánuðum síðasta árs. Hér verður fjallað um sjálfsmynd hinnar íslensku þjóðar fyrir og eftir þennan mikla skell og hvaða tækifæri geta búið í því að þurfa að takast á við þá endurskoðun sem slíkur skellur hefur í för með sér. Í fyrri hluta greinarinnar verður sjálfsmynd þjóðarinnar fyrir skellinn tekin fyrir og hugleiðingar ýmissa manna eftir skellinn um hvernig sjálfsmynd okkar var. Í seinni hlutanum verður svo fjallað um hugmyndir manna um breytt samfélag og ný tækifæri í kjölfar hrunsins.

Lesa áfram »

Þessi síða

Leita á þessari síðu

Greinar af handahófi


ISSN