
En hvað gerir þjóð með brostna sjálfsmynd? Hún hlýtur að endurskoða þau gildi sem ollu áfallinu. Ef litið er yfir það sem skrifað hefur verið í kjölfar efnahagshrunsins má sjá fremur skýrar línur sem lýsa má best í tveimur orðum: breytt gildismat. Hugsanagangur okkar fyrir kreppu gekk ekki upp og við erum að súpa seyðið af því núna. Við þurfum að læra af mistökum okkar til þess að leikurinn verði ekki endurtekinn í framtíðinni. Til þess þurfi nýja hugsun sem byggist á gömlum og góðum gildum en þó í nútímasamfélagi.
Lesa áfram »