Greinar frá deginum 7th April, 2009

þriðjudagur, 7. apr 2009

Lífið að húsabaki: umhverfi húsasunda í vesturbæ Reykjavíkur - fyrri hluti

rvk2

Sumarið 2004 rannsakaði ég húsasund í gamla Vesturbænum í Reykjavík. Rannsóknin var unnin með tilstyrk Nýsköpunarsjóðs námsmanna og undir dyggri leiðsögn Kristínar Þorleifsdóttur landslagsarkitekts. Verkefnið bar yfirskriftina Lífið að húsabaki: umhverfi húsasunda í vesturbæ Reykjavíkur en húsasund skipa stóran sess í skipulagi gamla Vesturbæjarins og búa yfir heilmikilli sérstöðu. Viðfangsefnið var umhverfi bakgarða við húsasund í Vesturbæ Reykjavíkur. Skipulag sambyggðra húsanna sem umlykja sundin að húsabaki býður upp á andstæður milli fram- og bakhliða húsanna. Að framanverðu geta húsin virkað frekar slétt og felld, kuldaleg og ópersónuleg en að húsabaki leynist allt annað umhverfi. Þar er pláss fyrir gróður og garða, fólk og persónlega tjáningu íbúanna. Markmið rannsóknarinnar var að setja fram heildstæða mynd af umhverfi húsasundanna í gamla vesturbænum í Reykjavík. Rannsóknin var tvískipt og hér verður fjallað um hana í tveimur hlutum. Í fyrri hlutanum er leitast við að gefa mynd af þróun gamla Vesturbæjarins með því að reifa sögu borgarhlutans í tengslum við skipulagsþróun borgarinnar og þeirra hugmyndafræðilegu áhrifaþátta sem sett hafa mark sitt á hverfið. Saga skipulagsþróunar Reykjavíkur, hugmyndafræði og hönnunarforsendur hverfisins gefa gott yfirlit og skapa grunninn fyrir innri greiningu umhverfisþátta sem tekin eru fyrir í seinni hlutanum. Þar eru þrjú húsasund tekin til sérstakrar skoðunar og er athyglinni sérstaklega beint að formfræði, nýtingu, upplifun og viðhorfum íbúa og annarra notenda húsasundanna.

Lesa áfram »

Þessi síða

Leita á þessari síðu

Greinar af handahófi


ISSN