Greinar frá deginum 30th April, 2009

fimmtudagur, 30. apr 2009

Hugleiðingar um umhverfisvakningu Íslendinga – seinni hluti

gg2

Mótmæli og birtingarform mótmæla almennings hafa breyst í tengslum við Eyjabakka og Fljótsdalsvirkjun og síðar Kárahnjúkavirkjun. Engin þurrð var á mótmælum vegna beggja virkjananna og sló hver annarri við hvað fjölda þátttakenda varðaði. Árið 2000 rituðu ríflega fjörutíu og fimm þúsund íslenskir ríkisborgarar nafn sitt á undirskriftalista til að krefjast þess að fram færi lögformlegt mat á umhverfisáhrifum Fljótsdalsvirkjunar en aldrei áður hafði nokkurt mál tengt umhverfinu hlotið jafn víðtækan stuðning á Íslandi. Yfirvöld féllu frá áformum um þá virkjun og réðust í Kárahnjúkavirkjun í staðinn, en þó engin leið sé að setja tölu á hversu margir landsmenn voru mótfallnir virkjanaframkvæmdunum og atgengi yfirvalda í stóriðjumálum öllum, er ljóst að fjöldi þeirra var stór.

Sigrún María Kristinsdóttir reifar virkjanaumræðu síðustu ára og heldur áfram að hugleiða breyttan þankagang Íslendinga og áhugaverða tíma hvað umhverfismál snertir.

Lesa áfram »

Þessi síða

Leita á þessari síðu

Greinar af handahófi


ISSN