Greinar frá mánuðinum June, 2009

þriðjudagur, 23. jún 2009

Búddismi, stéttskipting og vald

buddhahead
Búdda

Fátt hefur jafn víðtæk og djúpstæð áhrif á hugmyndaheim fólks og trúarbrögð. Mótunin fer aðallega fram með kennslu kenninga og athafna trúarinnar. Við gerum okkur ekki alltaf grein fyrir hversu mikil þessi áhrif eru en nauðsynlegt er að skyggnast undir yfirborðið öðru hvoru og kanna hvaða samfélagssýn má lesa út úr trúartextum og athöfnum. Hér verður sjónum beint að búddískum skrifum og hvað þau segja okkur um afstöðu þeirrar trúar til valds, kúgunar og stéttskiptingar.

Lesa áfram »

þriðjudagur, 16. jún 2009

Býr Íslendingur hér? og Sagan sem mátti ekki segja

225px-adolf_hitler-193311

Hér á eftir mun verða rætt um tvær sjálfsævisögur. Efni bókanna verður rakið í stórum dráttum, aðferðir og heimildanotkun gagnrýnd. Sagnrýni þessi var unnin haustið 2001, í námskeiðinu Sagan, minnið og persónulegar heimildir, sem Sigurður Gylfi Magnússon kenndi. Bækurnar sem um ræðir eru Býr Íslendingur hér sem er um minningar Leifs Muller, en hann lenti í klóm Nasista og þrælkunarbúðum þeirra. Búðirnar hétu Sachsenhausen og voru staðsettar rétt fyrir utan Berlín. Hin bókin fjallar um endurminningar Björns Sv. Björnssonar og heitir Ævi min og sagan sem mátti ekki segja. Þar er sagt frá störfum Björns í Þýskalandi og þjónustu hans í þýska hernum á tímum Hitlers. Garðar Sverrisson ritar sögu Leifs og Nanna Rögnvaldsdóttir sögu Björns.

Lesa áfram »

sunnudagur, 14. jún 2009

Mannamein til sýnis

syning5

Þessi misserin standa yfir í það minnsta þrjár sýningar hér á landi sem skarta fornum mannabeinum; tvær í Þjóðminjasafni Íslands og ein í Minjasafni Austurlands. Af því tilefni er að vert að velta fyrir sér siðferðisspurningum sem tengjast því að sýna forn mannamein. Fræðimenn hafa velt fyrir sér ýmsum spurningum þar að lútandi: Eru viss atriði í lífi horfinna kynslóða of viðkvæm til að birta niðurstöður um þau? Hvað ef fornleifarannsókn gæti til dæmis afhjúpað hvaða sjúkdómar herjuðu á einstakling, hvort ógift kona átti börn, hvort karlmaður hafi feðrað óskilgetið barn, hvaða fæðu hann lagði sér til munns, hvort hann eða hún hafi gengið með falskar tennur eða hárkollu, hvort hann eða hún hafi verið grálúsug/ur, hvort hann eða hún hafi verið með njálg, sárasótt, eða vansköpun eins og þrjár geirvörtur?

Lesa áfram »

þriðjudagur, 2. jún 2009

Eden-verkefnið

edenproject

Þeir sem stefna á ferð um England ættu ekki að láta heimsókn til Eden Project í Cornwall fram hjá sér fara. Eden Project, eða Eden-verkefnið, er nokkurs konar heimsgrasagarður sem settur var upp í þyrpingu risavaxinna gróðurhúsahvelfinga sem reistar voru á gömlu námusvæði árið 2001. Markmið þeirra sem standa að Eden-verkefninu er að kynna fyrir gestum jurtir frá öllum heimshornum og gera fólki grein fyrir þeirri þörf sem mannkynið hefur fyrir gróðurinn. Án plantna væri ekkert súrefni og ekkert líf á jörðu. Og ekki má gleyma að meiri hluti fæðu jarðarbúa, klæðum, húsaskjóli og lyfjum á uppruna sinn í jurtaríkinu.

Lesa áfram »

Þessi síða

Leita á þessari síðu

Greinar af handahófi


ISSN