Greinar frá mánuðinum July, 2009

fimmtudagur, 23. júl 2009

Lokað vegna veðurs

sun

Hugsandi ætlar að njóta góða veðursins og fara sumarfrí. Við snúum aftur þriðjudaginn 1. september.

Lesa áfram »

þriðjudagur, 14. júl 2009

Hugleiðing um stöðu latínu í íslensku menntakerfi á 21. öld

Asterix á latínu

Á þjóðhátíðardaginn, 17. júní síðastliðinn, var umfjöllun í Morgunblaðinu um fjölgun nemenda sem sækja um nám í framhaldsskólum miðað við fyrri ár. Einkum hefur umsóknum fjölgað í Menntaskólanum við Hamrahlíð og Menntaskólanum í Reykjavík og hafa þeir skólar fengið heimild til að taka við fleiri nemendum. Það vakti athygli mína að við greinina var mynd af kennslubókum í latínu og textinn undir myndinni: „Þeir sem vilja læra latínu þurfa að velja skóla við hæfi“.

Lesa áfram »

þriðjudagur, 7. júl 2009

Homo economicus?

tafla1

Í sumarbyrjun lá leið mín í finnska sendiráðið á Túngötunni ásamt betri helmingnum. Tilefnið var kosning til Evrópuþings. Í biðröðinni fyrir utan kjörfund barst tal okkar að fjölda hinna finnsku fulltrúa á þinginu, en þeim hafði að sögn fækkað síðan í síðustu kosningum til Evrópuþings. Ólíkt því sem ég hafði talið helst fjöldi þingmanna sá sami þrátt fyrir stækkanir sambandsins og því fækkar þingmönnum flestra aðildarríkja við hverja stækkun sambandsins. Hinir nýju þingmenn bætast sumsé ekki við hópinn sem fyrir er; spilunum er einfaldlega skipt upp að nýju. Sem dæmigerður Íslendingur spurði ég í forundran hvers vegna ný ríki væru þá yfir höfuð samþykkt inn „á kostnað“ hinna eldri, ekki síst ef kandídatarnir væru hlutfallslega illa stæðir en fjölmennir. Svarið var einfalt: Jújú, við þekkjum fórnarkostnaðinn við hverja stækkun til austurs, en við viljum gefa þeim tækifæri til að njóta sömu valkosta og við hin. Og svo snerist þetta líka um hagræðið af því að lönd, sem lægju þétt við hlið hvers annars, færu eftir sömu löggjöf. Á meðan betri helmingurinn dvaldi inni í kjörklefa sat ég á bekk fyrir utan herbergið, blaðaði í finnsku tímariti um fyrirmyndar viðskiptahætti, og velti ég fyrir mér hvernig þetta allt saman myndi passa inn í hina íslensku heimsýn. Værum við jafn tilbúin að deila gæðum okkar með öðrum?

Lesa áfram »

Þessi síða

Leita á þessari síðu


ISSN