
Á þjóðhátíðardaginn, 17. júní síðastliðinn, var umfjöllun í Morgunblaðinu um fjölgun nemenda sem sækja um nám í framhaldsskólum miðað við fyrri ár. Einkum hefur umsóknum fjölgað í Menntaskólanum við Hamrahlíð og Menntaskólanum í Reykjavík og hafa þeir skólar fengið heimild til að taka við fleiri nemendum. Það vakti athygli mína að við greinina var mynd af kennslubókum í latínu og textinn undir myndinni: „Þeir sem vilja læra latínu þurfa að velja skóla við hæfi“.
Lesa áfram »