Greinar frá deginum 3rd September, 2009

fimmtudagur, 3. sep 2009

Lúpínan vaxandi vandamál á Íslandi

alaskalupina

Lúpínan var fyrst flutt til Íslands árið 1946 af Hákoni Bjarnasyni skógræktarstjóra. Alaskalúpína (Lupinus nootkatensis) vex villt í Alaska þar sem hún er víða algeng á áreyrum. Hákon flutti hana upphaflega til landsins í landgræðslutilgangi enda var uppblástur og jarðvegseyðing á þessum árum í algleymingi. Sem betur fer hefur gróður náð sér á strik á síðustu árum eftir að sauðfé fækkaði mikið síðustu tvo áratugi. Þannig að víða eru rofabörð að falla saman og örfoka melar að gróa upp með innlendum gróðri en ber þá vanalega mest á holtasóley, krækiberjalyngi og beitilyngi. Lúpínan er sennileg sú jurt innflutt sem helst getur talist vera ágeng á íslenskt gróðurríki (eða invasive alien species1). Erlendis eru ágengar innfluttar tegundir vel þekkt vandamál, t.d. er talið að slíkar tegundir spilli árlega um 6500 km2 í Bandaríkjum Norður-Ameríku.

Lesa áfram »

Þessi síða

Leita á þessari síðu

Greinar af handahófi


ISSN