Greinar frá deginum 8th September, 2009

þriðjudagur, 8. sep 2009

Hið raunverulega val hinnar barmstóru konu? I. hluti

billboard_breast_implants

Umræða um hið raunverulega val konunnar sem kýs að stækka á sér brjóstin er áberandi í skrifum um hið félagslega og menningarlega samhengi brjóstastækkana. Sú umræða sveiflast oftar en ekki á milli tveggja póla alltumlykjandi formgerðar (e. structure) og atbeinis (e. agency). Með formgerð er hér í stuttu máli átt við vald og áhrif samfélagslegs strúktúrs á einstaklinginn. Sem formgerðarsjónarmið mætti þá t.d nefna það að telja konur óvirk fórnalömb samfélagslegra aðstæðna. Með atbeini er hér átt við hæfni einstaklings til þess að stjórna sínu eigin lífi. Sem dæmi um hið gagnstæða sjónarmið um atbeini væri t.d að telja val konu um að gangast undir hnífinn frjálst og óháð samfélagsöflum. Hinir ýmsu fræðingar hafa svo blandað sinn eigin formgerðar/atbeinis kokteil í leit að skýringum á sílikonfyrirbærinu þar sem reynt er að staðsetja hina brjóstgóðu konu einhversstaðar fyrir miðju í þessu flókna neti.

Lesa áfram »

Þessi síða

Leita á þessari síðu

Greinar af handahófi


ISSN