Greinar frá deginum 10th September, 2009

fimmtudagur, 10. sep 2009

Hið raunverulega val hinnar barmstóru konu? II. hluti

silikon

Í bók sinni The Beauty Myth: How Images of Beauty are Used Against Women fjallar Naomi Wolf um kenningu sína um fegurðarmýtuna svokölluðu. Að hennar mati er samfélagslegur þrýstingur á konur um að uppfylla fegurðarskilyrði samfélagsins öflugasta og útbreiddasta félagslega taumhald sem konur verða fyrir í nútímanum. Wolf bendir á að í nútímasamfélagi er konan ekki dæmd gild manneskja nema að hún aðlagi sig að hinu ráðandi fegurðargildi samfélagsins, sem á fátt sameiginlegt með raunverulegum líkama kvenna. Að mati Wolf kemur slík ofuráhersla á fegurð kvenna fram í kjölfar þess að konur hafa á síðustu hundrað árum brotið af sér flestar aðrar hömlur samfélagsins. Að mati Wolf er svar samfélagsins að kúga konur með því að láta þær keppa við óeðlilega og oft óheilbrigða fegurðarstaðla, hina svokölluðu fegurðarmýtu, eða með orðum Wolf: „Mjúkar, ávalar mjaðmir, læri og magar var álitið eftirsóknarvert og lostafullt þangað til að konur fengu kosningarétt.“

Lesa áfram »

Þessi síða

Leita á þessari síðu

Greinar af handahófi


ISSN