Eitt rótgróið stef í vestrænni menningu er óttinn við aðstæður sem einstaklingur hefur engin áhrif á. Þessi ótti birtist í ýmsum myndum; hugsanlegar afleiðingar hinna skelfilegu aðstæðna geta varðað lítinn hóp (t.d. flugslys eða hryðjuverk) eða stærstan hluta mannkyns (t.d. þynning ósonlags eða heimskreppa). Martröð hins algjöra úrræðaleysis má finna í ótal kvikmyndum og bókum. Hér rifjar höfundur upp, með aðstoð YouTube, hið yfirvofandi og óumflýjanlega kjarnorkustríð eins og það birtist í nokkrum vinsælum dægurlögum frá níunda áratug síðustu aldar.
Lesa áfram »