
Í þriðjudagsgrein Hugsandi var hið gleymda en sammannlega minni kjarnorkuógnar rifjað upp með rýni í valda popptexta og tónlistarmyndbönd. Í þeim var fjallað um hin valdamiklu gamalmenni sem heiminn höfðu í greipum sér og óttann við handhægan heimsendi - sem kæmi von bráðar ef/þegar einhver þrýsti óvart/viljandi á hnappinn rauða. Minningapartíið heldur nú áfram á YouTube þar sem nóg er til af hárlakki, silkiskyrtum og skærlitum grifflum í bland við reyksveppi, geislavirkt úrfelli og kjarnorkuvetur.
Lesa áfram »