
Elsta frásögnin sem greinarhöfundi er kunnugt um varðandi fjölmenningu er að minnsta kosti 2.500 ára gömul en í fyrstu Mósebók1 er greint frá því að manneskjan hafi eignast fjölmörg tungumál og upp frá því hafi henni reynst erfiðara að ná saman sem samfélag fólks á þeirri plánetu sem við kjósum að kalla jörð. Í þeim anda má ætla að samskipti milli menningarheima hafi fylgt mannkyninu og væri vissulega áhugavert að kafa djúpt ofan í þá sögu. En það er ekki viðfangsefni þessarar greinar heldur er valið að horfa á samtímann og örfá ár aftur í tímann og setja fram nokkra þanka um fjölmenningu.
Lesa áfram »